157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:13]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Herra forseti. Þetta „skuespil“ heldur áfram, allt í boði ríkisstjórnarflokkanna og vitleysan ætlar engan endi að taka. Ábyrgð meiri hlutans í þessum sal er að verða mikil. Þögn þingmanna Viðreisnar og þögn þingmanna Samfylkingar er algjör. Þögn ráðherra er algjör. Ætlar Viðreisn, sitjandi í matvælaráðuneytinu, í alvörunni ekki að hafa skoðun á þessu máli? Ætlar ráðherra ekki að bera ábyrgð á sínum málaflokki? Ætlar ríkisstjórnin að bera ábyrgð á þessari vitleysu sem hér er að eiga sér stað?

Hér hefur verið óskað eftir fundi með forseta. Það er ekki hlustað á það, herra forseti. Hér hefur verið óskað eftir fundi með ráðherra. Það er ekki orðið við því. Nú sitja hér allir þingmenn stjórnarmeirihlutans (Forseti hringir.) og horfa í gaupnir sér eða glápa á símana sína því þeir vita það innst inni að þeir hafa vondan málstað að verja.