157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Hér kom hv. þm. Sigurjón Þórðarson, sem hefur af ástæðu verið kallaður yfirsjávarútvegsráðherra hæstv. ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, og segir að þetta sé nú bara lítið mál og engar sérstakar breytingar og ekkert mál.

Virðulegi forseti. Hér stendur í nefndaráliti meiri hlutans nokkuð sem ég tel vera án fordæma og er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar, á ábyrgð Viðreisnar, að meiri hlutinn beini því til ráðherra að heildarráðgjöf fari að jafnaði ekki undir 4.500 tonn. Í alvöru. Ráðherra á bara að segja vísindunum og lífríkinu: Haldið ykkur þannig að við getum veitt 4.500 tonn. Ríkisstjórnarmeirihlutinn segir það. (Forseti hringir.) Ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur — ég á þetta, ég má þetta — ætlar að stíga ný skref og segja fiskunum í sjónum að vera nógu margir til að það sé hægt að veiða 4.500 tonn. Þetta er fordæmalaust, virðulegi forseti.