157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:17]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að draga þetta aðeins saman. Frá því í nóvember, þegar málið var tekið út, hefur ósk minni hlutans um yfirferð sérfræðinga um álitamál legið fyrir. Það er stutt m.a. af sérfræðingum úr ráðuneyti málaflokksins, löglærðum sérfræðingum og öðrum hagsmunaaðilum. Við höfum óskað eftir því að fá forstjóra Fiskistofu á fund nefndarinnar frá því í nóvember. Því er bara hafnað og sagt: Nei, við erum ósammála því, við höfum ekkert við hann að tala. Það var samþykkt að Lagastofnun gæfi út sérfræðiálit á málinu. Hálfum mánuði seinna kom meiri hlutinn með tillögu og dró þá ákvörðun nefndarinnar til baka. Við höfum leitað til ráðuneytisins. Svörin koma ekki þar. Við höfum óskað eftir opnum fundi með ráðherra sem sagði hér í óundirbúnum fyrirspurnum (Forseti hringir.) að hún myndi skýra sitt atkvæði í atkvæðagreiðslu um málið. Þessu hefur verið hafnað, svona óbeint. Við höfum óskað eftir því að lagaskrifstofa þingsins gefi álit sitt á málinu. Því er hafnað (Forseti hringir.) og sagt að það eigi að ljúka málinu strax. Við höfum óskað eftir fundi með forseta Alþingis til að fara yfir þessa stöðu og við höfum ekki fengið hann. Ef þetta er ekki ofbeldi af hálfu ríkisstjórnarflokkanna á ábyrgð, að mér virðist, (Forseti hringir.) Viðreisnar og Samfylkingar — vegna þess að þau eru eins og viljalaust verkfæri í nefndinni í höndum fulltrúa Flokks fólksins. Þau segja ekki orð. Þau spyrja ekki spurninga, þau taka ekki til máls. (Forseti hringir.) Þau rétta bara upp hendi þegar þeim er sagt að gera það.