157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:24]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Herra forseti. Fyrirgefið, þetta er náttúrlega ekki fyndið en þetta er svo aumt að ég á eiginlega ekki til orð. Hv. þingmenn meiri hlutans geta ekki einu sinni komið upp og réttlætt þetta. Ráðuneytið vill ekki gefa umsögn af því að þetta er svo vont mál eða gallað og þá er bara keyrt áfram, ekki keypt utanaðkomandi álit eins og lagt var til. Þetta er bara orðið eins og einhver sápuópera. Af hverju koma hv. þingmenn meiri hlutans ekki og réttlæta þetta? Hvað hefur Flokkur fólksins á ykkur? Ég bara skil þetta ekki.

Herra forseti. Ég legg til að atvinnuvegaráðherra komi og reyni að útskýra það fyrir okkur.