157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:25]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég heyri að það eru alls konar tilfinningar hér í salnum og ég ber virðingu fyrir þeim tilfinningum og ólíkum skoðunum þingmanna í þingsal. Það er mikilvægt að hafa í huga að í þessu máli, sem við erum að fjalla um annað þingið í röð, að það var afgreitt úr nefnd í nóvembermánuði og tekið á dagskrá í janúarmánuði. Það komu upp mótmæli gagnvart því að ráðuneytið hefði ekki komið fyrir fund nefndarinnar. Á fundi þingflokksformanna var sátt um að fá ráðuneytið innan umræðu á fund, sem það mætti á. Svo hófst 2. umræða. Þá var óskað eftir minnisblaði. Við því var orðið og það var afgreitt á fundi nefndarinnar í morgun. Orðið hefur við öllum þessum fyrirspurnum en á hverjum einasta fundi þegar orðið hefur verið við einni ósk þá fæðist alltaf ný. Sú nýjasta er að ráðherra eigi að vera mættur hér í þennan fundarsal þó að hún sé fjarverandi. Óskað er eftir opnum fundum.

Það er bara verið að fara í gegnum öll þau skref sem hægt er að fara í gegnum í þingsköpum. En það sem þingsköpin eru að verja eru þingstörfin og að mál fari sinn eðlilega farveg. (Forseti hringir.) Við erum komin í atkvæðagreiðslu eftir 2. umræðu. Svo fer málið aftur til nefndar og kemur svo í 3. umræðu.