157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:26]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Við fjöllum hér um fundarstjórn forseta og ég held að við séum öll sammála um það, við sem vorum hér við þingstörf fyrir tveimur dögum síðan, að sá dagur hafi ekki lyft virðingu Alþingis mikið upp. Og það er ekki bara hægt að sakast við stjórnarandstöðuna hvað það varðar, það bera allir ábyrgð hér. Forseti þingsins ber ábyrgð á þingstörfum. Því er ákall frá okkur í minni hlutanum um að forseti þingsins skerist í leikinn því að ég held að ekkert okkar hér inni hafi nokkurn áhuga á því að fara í þann darraðardans sem við vorum hér í fyrir tveimur dögum. Ég held að það sé algerlega ljóst. Það er vel hægt að leysa þessa hluti með samtali frekar en að við þurfum að koma hér trekk í fundarstjórn forseta til þess að reyna að byggja brýr á milli, (Forseti hringir.) við skulum segja Flokks fólksins, Viðreisnar og Samfylkingar.