157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:28]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Sá sem hér stendur var í atvinnuveganefnd í vor þegar málið kom fyrst fram þar og það byrjaði. Þá var mönnum ljóst að þetta væri aðför að aflamarkaðskerfinu sem við höfum byggt upp hérna í áratugi. Það er öllum ljóst, ætti að vera öllum ljóst, að þetta er alvarlegt inngrip. Þetta er fordæmi. Það gætu orðið hvaða breytingar sem er varðandi kerfið frá 1. september, á næsta tímabili, ef menn samþykkja þetta hérna í þinginu. Þetta er mjög alvarlegt. Það er ekki verið að virða eftirlitshlutverk þingsins í þessu máli eins og farið hefur verið fram í þinginu, í nefnd, í gegnum þennan farveg. Það er rosalega slæmt fordæmi ef þetta verður samþykkt. Það er greinilegt að þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar eiga rosalega erfitt með sig hér í dag og síðustu daga. Þeir koma ekki upp og ræða málið. Hv. þingmenn koma ekki upp og hafa ekkert til málsins að leggja. Meira að segja ekki nefndarmenn (Forseti hringir.) í hv. atvinnuveganefnd.

Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson. Þetta er ekki eðlilegur farvegur sem þetta mál hefur verið í.