fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Já, það er vont að verða vitni að þessari uppákomu hérna enn einn daginn, að ekki sé tekið tillit til óska minni hlutans og bara vaðið hér yfir án þess að nokkur sáttarhönd sé í sjónmáli. Ég minni á þau orð hæstv. forseta þingsins um hún ætli að gera allt hvað í hennar valdi stendur til þess að endurheimta traust þingmanna, allra þingmanna. Ég spyr: Hvar stöndum við gagnvart þeim orðum? Hvernig er verið að vinna að því sem lýst hefur verið yfir að sé hennar markmið á þessu þingi?