fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.
Herra forseti. Það er dapurt að verða vitni að þeim ófaglegu og þeim vondu vinnubrögðum sem stjórnarmeirihlutinn er að viðhafa á hinu háa Alþingi. Hér kemur hv. þm. Sigurjón Þórðarson upp áðan og talar um að það sé fordæmalaust hvernig stjórnarandstaðan tali í þessu máli. Hann segir að sú vinna, svo ég fái að vitna orðrétt í hann, sem hafi átt sér stað séu lýðræðisleg og góð vinnubrögð — lýðræðisleg og góð vinnubrögð. Nei, þetta eru hvorki lýðræðisleg né góð vinnubrögð sem stjórnarmeirihlutinn er hér að viðhafa. Málsmeðferð nefndarinnar er ekki góð og er ekki lýðræðisleg. Og enn ætla Viðreisn og Samfylkingin að sitja hér, horfa í gaupnir sér og í símana sína og ekki taka þátt eða bera ábyrgð þessari lögleysu sem er að eiga sér stað. Ég ætla bara að minna á að það var ráðgjöf (Forseti hringir.) frá atvinnuvegaráðuneytinu að kalla eftir lagalegum greiningum. Það var ráðgjöf frá þeim. Ætlar ríkisstjórnin í alvörunni að fara að raða hér inn misgáfulegum þingmannamálum og keyra þau óunnin í gegnum þingið? (Forseti hringir.) Þá er illa komið fyrir Alþingi Íslendinga.