157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[15:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og það er gott að heyra að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hafi gefið sér góðan tíma í að vinna þetta mál, tekið á móti mörgum gestum og fengið einhverjar umsagnir. En, virðulegur forseti, ég er enn þá ekki alveg að skilja hvað stendur til, þannig að spurningar mínar til hv. þingmanns eru: Fékk nefndin drög að reglugerð frá ráðuneytinu? Er nefndin farin að sjá ofan í það hvernig þessi reglugerð muni þá á endanum líta út? Út á hvað mun þessi reglugerð ganga? Gengur hún út á bann við símum á skólatíma eða einhvers konar annars konar útfærslu á símafríi? Er gert ráð fyrir því að þessi reglugerð verði birt fljótlega eftir samþykkt laganna og að hún muni þá taka gildi á yfirstandandi skólaári eða er verið að horfa á upphaf næsta skólaárs? Er gert ráð fyrir því að þessi reglugerð fari í einhvers konar samráðsferli og þá hvernig?