157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:11]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta hefur borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 525, um fjármuni til loftslagsmála, frá Karli Gauta Hjaltasyni.

Þá hafa borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 753, um skattrannsóknir, frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur, á þskj. 678 um forkaupsrétt, á þskj. 680, um lóðarleigusamninga, og á þskj. 684, um vinsæla áfangastaði ferðamanna í eigu ríkisins, allar frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.

Einnig hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 711, um lyfjakostnað sjúklinga og Sjúkratrygginga Íslands, frá Ólafi Adolfssyni, og á þskj. 712, um kostnað við skimun eftir krabbameini í ristli og endaþarmi, frá Rósu Guðbjartsdóttur.

Að lokum hefur borist bréf frá innviðaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 679, um umferðaröryggisaðgerðir og fallvarnir, frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.