aðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum.
Virðulegur forseti. Hæstv. forsætisráðherra kom hér og sagðist vera vakin og sofin yfir Íslandi. Ég efast ekki um að allir ráðherrar í hæstv. ríkisstjórn Íslands hafi verið vakandi og sofandi yfir hagsmunum Íslands. Það er ekki spurningin sem við erum að spyrja hér í dag heldur hvað eigi að gera. Það er ekki nóg að vera vakandi og sofandi. Það þarf að koma með raunhæfar aðgerðir. Það er algerlega kristaltært öllum sem hér eru inni, og fólkinu í landinu, að planið er ekki að virka. Það eru blikur á lofti í heimsmálunum og mikill órói á alþjóðamörkuðum, miklar áhyggjur eru af hækkun á olíuverði og að verðbólgan muni hækka í kjölfarið. Verðbólga á Íslandi er þrálát og mælist núna 5,2%. Atvinnuleysið er 7,3%, virðulegur forseti, og hefur ekki mælst hærri síðan í farsóttinni.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Var planið í fyrsta lagi að hækka gjöld umfram verðbólgumarkmið, að stórauka útgjöld ríkisins, að hækka laun umfram almennan markað og að skattleggja fólk og fyrirtæki óhóflega? Þrátt fyrir viðvaranir um að allt þetta sem hæstv. ríkisstjórn fór í myndi nákvæmlega leiða til þeirrar stöðu sem uppi er núna í íslenskri hagstjórn var ekkert hlustað. Þetta hefur raungerst nákvæmlega eins og við sögðum í aðdraganda fjárlagagerðar núna í desember.