157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

aðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum.

[16:00]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að það er áhyggjuefni, þrátt fyrir skiptar skoðanir um með hvaða hætti það mælist, að það sé launaskrið, sérstaklega hjá hinu opinbera. Hversu mikið það kemur til vegna þessarar ríkisstjórnar eða kjarasamninga sem voru gerðir fyrir tíma hennar ætla ég ekki að hafa mörg orð um hér inni. Ég held að það liggi alveg fyrir að við þurfum öll að finna til ábyrgðar þegar kemur að kjarasamningum, bæði opinberi markaðurinn og hinn almenni, fyrst út í það er spurt. Það lá alltaf fyrir að áætlun þessarar ríkisstjórnar var að koma skikki á ríkisfjármálin. Það er í rauninni stærsta einstaka leiðin fyrir ríkið til þess að hafa einhver áhrif á umsvifin hér þegar kemur að þenslu. Ríkið hreyfir sig hægt. Það getur ekki haft áhrif á verðbólgu frá mánuði til mánaðar. Já, fólk getur nefnt hér gjaldskrárhækkanir. Það vill þannig til að þær mælast í verðbólgu en það sem mælist líka í verðbólgu, ef það situr allt of lengi á hakanum að rukka fyrir ákveðna þjónustu, þá myndast gat á þjónustunni, vanfjármögnunargat, og annaðhvort þarf að hætta með þjónustuna eða það þarf að afla tekna eða fara í niðurskurð annars staðar. Það liggur alveg fyrir að ef gjaldskrár halda ekki í við þjónustuþróun þá þarf eitthvað eftir að gefa. Að það mælist í verðbólgu er vissulega miður en þetta hefur auðvitað verið partur af því ferli að koma skikki á afkomu ríkissjóðs. Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Það er ekki bæði hægt að bæta í þjónustuna, gefa eftir allar gjaldskrárbreytingar og ætlast síðan til þess að verðbólgan minnki. Það liggur alveg fyrir að það mun þurfa að ráðast í erfiðar aðgerðir. Þessi ríkisstjórn treystir sér til að gera það. Við erum að vinna í því núna við gerð fjármálaáætlunar að, já, halda plani. Fólki kann að finnast skrýtið að ég segi það ítrekað hér inni en það þarf þrautseigju til að standa í fæturna og gefast ekki upp, halda sig við afkomumarkmið þegar á móti blæs. Það er það sem þjóðin og fólkið þarna úti þarf að heyra, að þessi ríkisstjórn ætlar að halda sjó og við munum standa við okkar þó að við fáum óþægilegar mælingar núna í nokkur skipti.