157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

aðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum.

[16:03]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég hef heyrt þessa ræðu hæstv. forsætisráðherra áður þegar við höfum verið að spyrja nákvæmlega um stöðuna í efnahagsmálum, það er alltaf sama svarið: Við ætlum að halda plani. Svoer fingrinum beint í aðrar áttir. Ég hef áhyggjur af því, virðulegur forseti, að við munum ekki ná árangri í ríkisfjármálunum ef menn eru ekki tilbúnir að horfa í eigin barm og líta á hvað hæstv. ríkisstjórn getur gert betur.

Mig langar hér í lokin að spyrja: Hvað vill hæstv. forsætisráðherra segja við heimilin í landinu þar sem greiðslubyrði hefur aukist um tugi þúsunda og þá aðila sem hafa misst vinnuna? Að lokum, hæstv. forsætisráðherra: Það gerir lítið fyrir heimilin í landinu að koma hér mánuð eftir mánuð og segja að verðbólgumælingarnar séu vonbrigði. (Forseti hringir.) Hin raunverulegu vonbrigði eru aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og afneitun á því að planið sé ekki að virka.