aðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum.
Forseti. Þrátt fyrir þessa umræðu þá stefnir í að við skilum fyrstu hallalausu fjárlögunum í tíu ár. Þrátt fyrir þessa umræðu þá liggur fyrir að vextir hafa lækkað um 2% á undanförnum mánuðum. Þrátt fyrir þessa umræðu þá liggur fyrir að, já, verðbólgan er 5% en hún fór upp í 10% á síðasta kjörtímabili. Staðreyndin er þessi: Við stöndum úti í miðri á og við ætlum að halda okkur við okkar áform um að skila hallalausum fjárlögum. Við getum ekki handstýrt verðbólgunni frá mánuði til mánaðar. Við gætum gert það með því að sleppa við stakar breytingar á gjaldskrám til að hagræða, breyta tölunum til skamms tíma, til þess eins að knýja afkomuna á verri stað en ella. Það ætla ég ekki að gera. Það ætlar þessi ríkisstjórn ekki að gera. Planið mun virka. Vextir munu rata niður á við vegna þess að verðbólga mun rata niður á við því þetta plan mun virka vegna staðfestu þessarar ríkisstjórnar. Sjáið til.