157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB.

[16:05]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Verðbólga og atvinnuleysi mælast nú í hæstu hæðum og hafa ekki mælst hærri síðan í heimsfaraldrinum. Ég held að ég geti vottað að nú geisar enginn heimsfaraldur og það er ekkert útlit fyrir að vextir séu að lækka í bráð og jafnvel talið að það verði ekki fyrr en á seinni hluta þessa árs sem við getum farið að horfa fram á vaxtalækkanir. Það er alveg greinilegt að hæstv. ríkisstjórn virðist einhvern veginn vera búin að gefast upp á verkefninu, að reyna að ná tökum á efnahagslífinu í landinu. Það sjá það allir að þau eru búin að kasta inn handklæðinu og vilja helst reyna að afhenda það embættismönnum í Evrópu, sem enginn kaus, og afhenda þeim lyklavöldin og stjórnina. Nú lesa Íslendingar það í erlendum fjölmiðlum að atkvæðagreiðsla eigi að fara fram í ágúst. Það á greinilega ekki að gefa þjóðinni mikið svigrúm til að ræða þetta mikilvæga mál heldur á að láta þessa þrjá mánuði sem þurfa að líða falla undir sumarið. Það á að nota sumarið í að láta þessa þrjá mánuði líða, þegar þingið er í fríi, og fara beint í atkvæðagreiðslu ef rétt reynist hjá erlendum fjölmiðlum.

Ég spyr bara: Við hvað er ríkisstjórnin hrædd? Það vakna upp þessar spurningar ef hún vill ekki fá þessa eðlilegu umræðu hjá þjóðinni. Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Í staðinn fyrir að standa í þessu bjölluati við Evrópusambandið og vera með einhverjar loðnar spurningar um það að halda áfram að kíkja í pakkann er þá ekki bara hreinlegast að spyrja þjóðina hinnar einu sönnu spurningar, hinnar einu spurningar sem virðist skipta máli í þessu samhengi: Viltu ganga í Evrópusambandið?