157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.

[16:24]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Mér hafa ekki fundist svörin við eðlilegum athugasemdum frá hv. þingmönnum vera skýr eða uppörvandi. Það að fara að hittast í næstu viku gerir lítið fyrir málið. Nú er það þannig, virðulegi forseti, að það er skrýtið ef við þurfum að tala hér um að það skipti máli að lýðræðið sé virkt. En kannski er það þannig að þessi hæstv. ríkisstjórn er bara í huganum komin á fleygiferð inn í hið ólýðræðislega Evrópusamband þar sem menn þurfa ekkert að þvælast í svona vinnubrögðum og því ætli menn sér bara að fara að tileinka sér það af enn meiri þunga en núna. Kannski er það bara málið. Það er lítilsvirðing, virðulegur forseti, við þingið ef menn ætla að hafa það sem reglu að verða ekki við algjörlega eðlilegum óskum hv. þingmanna, því það eru ekki bara hv. stjórnarandstöðuþingmenn (Forseti hringir.) sem eiga að huga að því að mál séu vönduð. Það ætti að vera þannig að hv. stjórnarþingmenn ættu líka að vilja fá þessar upplýsingar.