157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.

[16:26]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Ég ætla nú að taka undir einmitt af því að mér finnst hafa verið korter síðan það var farið fögrum orðum um vinnubrögð hv. þingmanns og formanns utanríkismálanefndar, Pawel Bartoszek, í nefndinni. Þannig hefur þetta alltaf verið allan þann tíma sem ég hef þekkt hann sem stjórnmálamann, bæði hér á þinginu sem og hjá borginni. Hitt er síðan að það eru náttúrlega rangfærslur sem hafa verið hér uppi. Það er ekki nýlunda að það séu auglýst sumarstörf. Þetta er nákvæmlega sama auglýsingin og hefur verið áður hjá utanríkisráðuneytinu. Það er einfaldlega verið að vinna í haginn fyrir sumarið og auglýsa sumarstörf; ekkert nýtt þar, ekkert nýtt á ferðinni. Þannig að það er verið að gera eitthvað tortryggilegt. Varðandi það þá erum við einfaldlega í staðinn fyrir að borga gjaldið fyrir umsóknir um að koma hingað til landsins og við höfum borgað Danmörku og Noregi, fín lönd, fyrir að hafa séð um þessa umsýslu fyrir okkur, en nú erum við að taka þetta í okkar hendur. Mér finnst það pínulítið skrýtið að enn og aftur þá eigum við ekki að treysta okkur í það að sjá um þessa umsýslu og fá gjaldið í leiðinni fyrir. Það er eitthvað sem stangast á hér (Forseti hringir.) varðandi þennan raunverulega veruleika sem þetta mál snýst um. Við erum einfaldlega að taka stjórnina í okkar hendur í þessum málum og (Forseti hringir.) við verðum einfaldlega að láta þá sem sækja um greiða fyrir þá þóknun. Ég hefði haldið að alla vega þeir sem telja sig hægri sinnaða væru að fagna slíkum breytingum.