157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.

[16:28]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Ef einhvern tímann var hér gott dæmi um hvað það skiptir miklu máli að ræða málin í hv. þingnefndum þá var það í ræðu hæstv. utanríkisráðherra í fundarstjórn forseta þar sem hann fer í efnisumræðu og segir að þetta sé allt saman einhver misskilningur. Væri kannski hugmynd, virðulegi forseti, að ræða málið í nefndinni þannig að menn væru alla vega sammála um hvað það er sem þeir eru ósammála um? Eða á það að vera reglan að hér komi hæstv. ráðherrar og taki efnislega umræðu þegar hv. þingmenn eru að gera athugasemdir við að það sem hafi þótt eðlilegt svo áratugum skipti sé hunsað og vaðið yfir stjórnarandstöðuna? Þá gætum við kannski gert þetta eins og á að gera þetta, klárað það sem á að gera í nefndunum og tekið svo efnislega umræðu hér.

Það er alvarlegt, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, að hér sé þingmeirihluti sem ætlar sér, með einbeittum brotavilja, að brjóta þessar hefðir og venjur sem eru komnar til af ástæðu. Þeir sem eru búnir að vera lengur í stjórnarliðinu (Forseti hringir.) ættu að þekkja það manna best og ættu að beita sér til þess að það þurfi ekki að taka þessa umræðu hér aftur og aftur.