157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.

[16:30]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Ég auðvitað fagna því að hæstv. utanríkisráðherra komi hérna og leiðrétti okkur ef það er einhver misskilningur í gangi varðandi málið. Veruleikinn er sá að ég skildi ekki og kollegar mínir ekki heldur af hverju lægi svona mikið á. Af hverju var ekki hægt að koma á móts við þessar tvær beiðnir um umsagnir? Svo kemur þessi auglýsing og það er bara ágætt ef hún er algjörlega ótengd málinu en auðvitað fer maður að velta þessu fyrir sér. Hver var ástæðan fyrir því að það lægi svona mikið á því? Ég sé það ekki alveg í hendi mér. Hér undir fundarstjórn forseta erum við fyrst og fremst að velta fyrir okkur störfum þingsins og hvernig við störfum saman í nefndum, hvernig við treystum hvoru öðru, hvernig á að koma á móts við sjónarmið til þess að tryggja að málin sem við erum að vinna að séu betri. Ég vil bara halda því til haga að það er ekkert sérstakt skemmtimál að koma hérna upp og benda á þetta vegna þess að þetta hefur ekki verið svona. Þetta er nýtt. (Forseti hringir.) Þetta er sérstaklega nýtt í utanríkismálanefnd og ég endurtek það að ég ætla að vona að þetta sé ekki einhver ný stefna nefndarinnar.