157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.

[16:36]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég ætla að halda áfram og undirstrika það sem hefur komið hér fram: Það er verið að auglýsa sumarstörf eins og verið hefur og það er engin nýlunda í því eins og sumir voru að reyna að ýja að. Í öðru lagi varðandi að það séu ekki fjárheimildir fyrir því sem við erum að gera: Við fengum einmitt fjárheimildir fyrir árið 2026 til að auka afkastagetu við útgáfu Schengen-áritana um 10.000–15.000. Það þarf ekkert að nota „barst mér til eyrna“, þetta liggur allt hjá ráðuneytinu. Ég veit ekki hvers konar vinnubrögð það eru að tala um einhverjar flökkusögur. Þetta liggur fyrir hjá ráðuneytinu alveg fyrir opnum tjöldum að við Íslendingar ákváðum að taka þessar 10.000–15.000 vegabréfsáritanir sem Norðmenn og Danir hafa séð um fyrir okkur og fengið fúlgur fjár fyrir. Við ákváðum einfaldlega að taka þessa stjórn í okkar hendur. Ég hefði haldið það alla jafna að við værum ekki að mótmæla því. Fyrir það látum við fólk greiða af því að við sjáum um þetta sjálf. Það er mikil þörf greinilega því hér kemur fólk sem er sumt ekki í utanríkismálanefnd (Forseti hringir.) og heldur fram ýmsum staðhæfingum sem eru einfaldlega rangar — þetta er allt fyrir opnum tjöldum. Auglýsingarnar í dag eru í samræmi við það sem áður hefur verið unnið og við erum einfaldlega að taka stjórnina (Forseti hringir.) á okkar eigin vegabréfsáritunum. Flóknara er það nú ekki.