stafræn og rafræn málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna stafrænnar og rafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumönnum og dómstólum. Með frumvarpinu er ætlað að ryðja úr vegi hindrun í gildandi löggjöf fyrir því að nota megi stafræna og rafræna málsmeðferð við meðferð mála sem eru rekin hjá sýslumönnum, skiptastjórum og dómstólum.
Með frumvarpinu verða því lög um aðför, um skipti á dánarbúum, gjaldþrotaskipti, nauðungarsölu og erfðalög gerð hlutlaus um afhendingarmáta gagna, heimilt verður að nota rafrænar staðfestingar og fjarfundarbúnað og heimilt verður að birta tiltekin gögn í gegnum stafrænt pósthólf.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Forseti. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega:
Umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir í garð frumvarpsins og hvöttu til þess að það yrði samþykkt. Nokkrar ábendingar voru gerðar um efni og útfærslu þess og lúta þær ábendingar flestar að sjónarmiðum varðandi ólíkar birtingarleiðir í stafrænu pósthólfi.
Meiri hlutinn tekur undir þau markmið sem stefnt er að með frumvarpinu þess efnis að stuðla að betri nýtingu tæknilegra innviða sem þegar eru í notkun og mótun á umræddum réttarsviðum, ásamt því að hafa jákvæð umhverfisáhrif með því að draga úr ferðalögum og notkun pappírs.
Frumvarpið stuðlar einnig að einfaldara og notendavænu réttarvörslukerfi þar sem málsmeðferðir verða greiðari án þess að fórna gæðum og réttaröryggi.
Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpinu er aðallega lögð til sú breyting að sýslumönnum og dómstólum verði heimilað að nota stafrænar og rafrænar lausnir við meðferð mála sem rekin eru á grundvelli laganna til viðbótar við hefðbundna papprísferla, án þess að breyta efnisreglum laganna. Þá telur meiri hlutinn mikilvægt að frumvarpið verði að lögum svo að stigin verði þau skref sem lagabreytingarnar fela í sér.
Frú forseti. Nefndin fjallaði m.a. um kröfu um staðfestingu á móttöku gagna í stafrænu pósthólfi. Í frumvarpinu er lagt til að birting gagna og tilkynningar frá sýslumanni eða héraðsdómara, samkvæmt fyrrnefndum lögum, skuli sendar málsaðilum í stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Með frumvarpinu er að meginstefnu fylgt þeirri línu sem lögð hefur verið með gildandi löggjöf um kröfur til birtingar og hvort krafist sé staðfestingar á móttöku. Hvað varðar tilkynningar í stafrænu pósthólfi teljast þær í ákveðnum tilfellum réttilega birtar þegar málsaðili hefur staðfest móttöku þar. Markmið með staðfestingu er að tryggja réttaröryggi og standast betur kröfur um mikilvægi þess að tilkynning hafi sannanlega borist málsaðila, sérstaklega þegar efni hennar er íþyngjandi.
Í umsögn dómstólasýslunnar eru gerðar athugasemdir við kröfu um staðfestingu á móttöku tilkynningar í stafrænu pósthólfi þar sem bent er á að í gildandi löggjöf sé ekki gerð sérstök krafa um að málsaðili, sem birta á tilkynningu fyrir, staðfesti móttöku. Með tilliti til þess að stafrænt pósthólf eigi að tryggja betra aðgengi að tilkynningum eigi því ekki að gera strangari kröfur til réttaröryggis við birtingu gagna í stafrænu pósthólfi en núgildandi lagaákvæði kveða á um í reynd.
Dómstólasýslan benti einnig á að tilkynningar yrðu áfram birtar af stefnuvottum fyrir þá sem kjósa að staðfesta ekki móttöku í stafrænu pósthólfi, sem krefjist þá aukins mannafla til að sinna tvöfaldri birtingu og þar með væri markmiði um hagræði og skilvirkni stafrænnar birtingar ekki náð. Þá sé aðdragandi tiltekinna mála langur og málsaðilar því meðvitaðir um stöðu sína áður en íþyngjandi tilkynningar í stafrænu formi koma fram. Dómstólasýslan telur því að réttaröryggi sé tryggt án þess að krafa sé gerð um staðfestingu.
Í minnisblaði frá dómstólaráðuneyti er vísað til þess að með frumvarpinu séu ekki lagðar til breytingar á málsmeðferðarreglum sem hafa verið við lýði frá því að löggjöfin sem á í hlut tók gildi. Meginreglan verður áfram sú að gögn teljist birt fyrir viðtakanda þegar þau eru aðgengileg honum. Í einstaka tilvikum eru gerðar ríkari kröfur um að viðtakandi hafi sannanlega tekið við gögnum með því að krefjast staðfestingar. Staðfesting á móttöku þykir nauðsynleg í ákveðnum tilvikum vegna þeirra hagsmuna sem eru í húfi og vegna réttinda einstaklinga sem tryggð eru í stjórnarskránni og geta varðað friðhelgi einkalífs og friðhelgi eignarréttar.
Frumvarpið breytir ekki þeirri framkvæmd á annan veg en að bjóða aðilum upp á að nýta stafrænt pósthólf fyrir miðlun gagna til viðbótar við núgildandi leiðir.
Við umfjöllun málsins fyrir nefndinni vógust á þessi sjónarmið þar sem ýmist var talin ástæða til að gera breytingar á áskilnaði frumvarpsins um staðfestingu á móttöku birtingar og lagt til að sú leið yrði gerð að meginreglu, eða að víkja skyldi frá þeim áskilnaði og að birting teldist fullnægjandi þegar gögn væru aðgengileg í stafræna pósthólfinu.
Meiri hlutinn telur mikilvægt að stíga það skref sem frumvarpið felur í sér svo að mögulegt verði að bjóða upp á þá leið að nýta stafrænt pósthólf fyrir miðlun gagna til viðbótar við núgildandi leiðir.
Meiri hlutinn tekur undir afstöðu ráðuneytisins og undirstrikar að meginreglan verði áfram sú að gögn teljist birt fyrir viðtakanda þegar þau eru aðgengileg honum. Krafa um staðfestingu er til þess fallin að tryggja réttaröryggi, sérstaklega í íþyngjandi málum.
Þá fjallaði nefndin um jafnt aðgengi að stafrænum lausnum. Öryrkjabandalag Íslands undirstrikaði mikilvægi þess í umsögn sinni að fylgja viðmiðum um stafrænt aðgengi fyrir fatlað fólk og móta þar skýr viðmið. Stafrænar lausnir geta auðveldað fötluðu fólki að nýta sér þjónustu betur en í raunheimum en stafrænt pósthólf er enn óaðgengilegt mörgu fötluðu fólki og tilkynningar þar geta því ekki talist réttilega birtar þegar þær eru aðgengilegar.
Dómstólasýslan benti á í því samhengi að rekjanlegt væri ef þeir sem ekki hafa rafræn skilríki geta ekki skráð sig inn í pósthólfið. Því væri ekki hætta á að tilkynning yrði send í pósthólf sem ekki er hægt að opna.
Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið og telur brýnt að hugað verði að því sem fyrst að tryggja jafnt aðgengi að stafrænu pósthólfi.
Meiri hlutinn tekur jafnframt undir sjónarmið Öryrkjabandalags Íslands um að ekkert megi koma í veg fyrir að stafrænar lausnir verði tryggðar fyrir allt fatlað fólk. Það verði þó ekki útfært nánar í fyrirliggjandi frumvarpi þar sem ákvæði sem mæla fyrir um sérstakar viðmiðanir fyrir stafrænt aðgengi falla utan efnis þessa frumvarps.
Nefndin fjallaði að auki um heimild annarra aðila til að birta gögn í stafrænu pósthólfi. Tilteknir umsagnaraðilar bentu á að sömu hagkvæmnissjónarmið byggju að baki afhendingu gagna í stafrænu pósthólfi hvort sem sendandi væri opinber eða einkaaðili. Umræddir umsagnaraðilar gerðu tillögu þess efnis að einkaaðilum og öðrum innheimtuaðilum yrði einnig heimilt að senda eða birta gögn í stafrænu pósthólfi.
Meiri hlutinn hefur skilning á þeim sjónarmiðum en telur ekki tilefni til að leggja til slíka breytingu í fyrirliggjandi frumvarpi. Meiri hlutinn telur þó ástæðu til að það verði tekið til nánari skoðunar í samræmi við viðeigandi ráðuneyti.
Vík ég þá að breytingum sem lagðar eru til á frumvarpinu, en meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til sú breyting samkvæmt tillögu sýslumannaráðs á lögum um nauðungarsölu að heimild til mætingar um fjarfundarbúnað við byrjun uppboðs á starfsstöð sýslumanns verði eingöngu bundin við gerðarbeiðanda og gerðarþola. Sýslumannaráð bendir m.a. á í þessu sambandi að oft liggi ekki fyrir upplýsingar hjá sýslumanni um það hverjir það eru sem teljist til aðila máls og geti það valdið sýslumönnum og starfsfólki hans vandkvæðum.
Í öðru lagi er lagt til að fella brott bráðabirgðaheimildir í erfðalögum og lögum um skipti á dánarbúum um heimild til að beita rafrænum lausnum og fjarfundarbúnaði í ákveðnum tilvikum. Að óbreyttu hefðu heimildirnar fallið úr gildi um næstu áramót en þær voru seint á síðasta ári framlengdar til að tryggja samfellu í framkvæmd. Þar sem umrætt frumvarp kveður á um viðlíka heimildir leggur meiri hlutinn til að umrædd bráðabirgðaákvæði falli brott en ekki fer vel á því að ákvæðin séu í gildi fram yfir þann tíma þegar frumvarpið er orðið að lögum.
Þá er í þriðja lagi lögð til breyting á gildistökuákvæði frumvarpsins til samræmis við brottfall framangreindra bráðabirgðaheimilda.
Þá eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem ekki þarfnast sérstakrar umfjöllunar.
Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Frú forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.
Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sandra Sigurðardóttir.
Frú forseti. Að síðustu vil ég fagna því að nú sé í sjónmáli að frumvarp þetta verði að lögum. Ég tel að með því séu stigin skref til að sýslumenn geti í auknum mæli nýtt sér stafrænar og rafrænar lausnir í störfum sínum og með því aukist hagkvæmni í starfseminni auk þess sem notendur þjónustu sýslumanna fái notið aukins hagræðis, þar með talið betra aðgengis að þjónustu sýslumanna. Það er mjög viðeigandi að skref séu stigin inn í framtíðina hvað þetta varðar.