157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að vekja athygli þjóðar og þings á því að ríkisstjórnin vinnur nú að gerð fyrstu ungmennastefnu Íslands. Nú stendur yfir samráðsferli úti um allt land við ungt fólk um hvernig við ætlum að nálgast starf og þjónustu við ungt fólk á aldrinum 13–30 ára til næstu sjö ára. Ég vil hvetja þingmenn og þjóðina sem fylgist með því að taka virkan þátt í samráðinu. Við erum fyrst og fremst að leita til unga fólksins og hagaðila en þar sem þingmenn eru vel tengdir úti um allt land vil ég hvetja þingmenn til að nýta sín áhrif til að dreifa boðskapnum. Opið er sem sagt í samráðsgátt stjórnvalda. Ég vil hvetja ykkur til að hvetja unga fólkið í kringum ykkur til að taka þátt því það er ekki oft sem stjórnvöld leita til ungs fólks á fyrstu skrefum í vinnunni. Við erum í rauninni með autt blað fyrir framan okkur en með eitt markmið: Hvernig getum við stutt betur við unga fólkið á Íslandi? Frá þessum tímapunkti til 12. mars er hægt að senda inn umsögn í samráðsgáttina. Í kjölfarið munu fulltrúar ráðuneytanna koma saman og vinna úr umsögnunum en líka ræða hvað ráðuneytin stefni að því að gera í sínum málaflokkum. Með því að sameina þessar tvær vinnulotur koma svo drög að ungmennastefnu sem mun fara í samráðsgátt aftur og verður svo lögð fyrir þingið í haust. Í ungmennastefnu almennt er verið að nálgast málefni ungs fólks með mjög breiðum hætti. Annars vegar hvernig viljum við halda utan um unga manneskju sem fer í gegnum skólann, gengur vel, fer á næsta skólastig, hefur sinn starfsferil, eignast fyrstu fasteign og eignast sitt fyrsta barn en líka þau ungmenni sem fara út af sporinu, þurfa viðbótarstuðning inn í skóla eða jafnvel falla út úr skólanum og þurfa þá öfluga stoðþjónustu sem tekur við.

Hvernig viljum við halda utan um ungt fólk á Íslandi? Ég vil hvetja sem flesta til að taka þátt.