157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Nú stendur loðnuvertíðin sem hæst. Frystingu er víðast hvar að ljúka og verksmiðjurnar eru að fara í hrognavinnsluna. Verðmætasköpunin, sem stjórnarliðum er svo tíðrætt um, er í fullum gangi hvað loðnuvertíðina varðar og skilar milljarðatugum í ríkissjóð. Á sama tíma eru samgöngur við okkar helsta sjávarútvegsbæ, Vestmannaeyjar, lamaðar. Landeyjahöfn er lokuð vegna grynninga og hefur Herjólfur siglt í Þorlákshöfn meira og minna síðustu tvo mánuði. Nú er Álfsnesið, sanddæluskipið, bilað og viðgerð gæti tekið 10–20 daga samkvæmt fregnum og þá á eftir að dýpka höfnina sjálfa. Það er ekkert varaplan hvað samgöngur varðar í Vestmannaeyjum, frú forseti, ekkert varaplan. Hvenær svo tekst að opna höfnina er óvíst þar sem veður stjórnar dýpkun mun meira en ásættanlegt er, frú forseti. Gera stjórnvöld sér grein fyrir þeim kostnaði sem felst í því að hafa samgöngur við Eyjar í ólagi? Gera stjórnvöld sér grein fyrir því hvað það kostar að hafa þetta í ólagi? Allt kostar meira. Afurðirnar, fiskurinn verður eldri og lakari fyrir utan þann tíma og útgjöld sem íbúar þurfa að leggja í til að sækja sér þjónustu sem aðrir telja sjálfsagða. Hvað gerist ef snjóruðningstæki bilar og ekki tekst að opna vegi úti um landið? Hvað gerist þá? Það er fengið annað tæki sem dugar til að opna veginn en því er ekki að heilsa með þjóðveginn til Vestmannaeyja.

Frú forseti. Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum þurfa að vera í lagi. Þörf er á öflugra dæluskipi og á meðan ástandið varir þarf að fjölga flugum til Vestmannaeyja. (Forseti hringir.) Að síðustu þarf nú þegar að koma með lausnir, sem lengi hefur verið beðið eftir, á því hvernig skuli lagfæra Landeyjahöfn svo hún geti þjónað hlutverki sínu.