störf þingsins.
Frú forseti. Nú er nýliðin kjördæmavika þar sem þingmönnum gafst tækifæri til að fara heim í sín kjördæmi og eiga samtal við kjósendur þar. Sá sem hér stendur er þar engin undantekning og ferðaðist talsvert og allnokkuð og mikið um Norðvesturkjördæmi. Það var margt kunnuglegt í þeim samtölum sem hefur fylgt þessari viku, kjördæmavikunni, í samtali milli þingmanna og kjósenda um ára- eða áratugaskeið. Má þannig til að mynda nefna samgönguáætlun, en hún var óvenjufyrirferðarmikil núna, óvenjufyrirferðarmikil, enda má lýsa henni gagnvart Norðausturkjördæmi sem ömurð. Annað sem kom til eru auðvitað skattahækkanir, mikið ræddar, og þar á meðal kílómetraskatturinn. En þingmenn úr meiri hluta hafa m.a. stigið hér í þennan ræðustól til að segja okkur hinum sem höfðum efasemdir um hversu vel hefði gengið að innleiða þennan skatt og þessa kerfisbreytingu. Það hefur gengið svo vel að kvörtunum rignir inn, þeim rignir inn, samfélagsmiðlar loga þar sem fólk er að skiptast á dæmisögum, þar sem fólk fær glórulausa reikninga á ökutæki sem hafa jafnvel lítið sem ekkert verið hreyfð. Það væri kannski ekki svo slæmt ef það væri einfalt mál að fá það leiðrétt. En það hefur heldur ekki gengið, frú forseti. Það hefur ekkert gengið að fá leiðréttingar og á meðan er ríkissjóður að fá vaxtalaust lán frá íbúum þessa lands, vaxtalaust lán. Því að það er jú þannig, eins og við þekkjum hér í sal og allir í íslensku samfélagi, að skatturinn greiðir okkur ekki vexti. Þetta er raunveruleikinn og það væri ágætt fyrir þennan sal að fara að komast inn í hann af og til.