störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í kjördæmaviku fór ég víða um Suðurkjördæmi og heimsótti m.a. íslenska blómabændur sem hafa byggt upp starfsemi sína af ótrúlegum metnaði. Ég hreifst mikið af þeim mikla þrótti, vandvirkni og alúð. Espiflöt er eitt þeirra fyrirtækja. Það er fjölskyldurekið blómabú þar sem þrjár kynslóðir hafa komið að myndarlegri uppbyggingu. Þar má finna lifandi sögu íslenskrar ræktunar frá fyrstu skrefum þar sem jarðhitinn var nýttur af framsýni til nútímalegrar framleiðslu þar sem tækni, orkunýtni og fagmennska ráða för. Það vakti sérstaka athygli mína hvernig hefðir og nýsköpun fara saman í rekstrinum. Innleiðing LED-lýsingar í gróðurhúsum er gott dæmi um það. Með henni er hægt að draga verulega úr raforkunotkun, auka hagkvæmni og bæta aðstæður plantnanna. Þetta sýnir að íslensk blómaræktun er ekki föst í fortíðinni. Hún er framsýn, tæknivædd og tilbúin að laga sig að breyttum tímum og finna lausnir. Það sem heillaði mig þó mest var þekking fólksins sem þarna býr að baki; þekking sem safnast hefur upp áratugum saman, þekking sem erfist ekki bara í bókum heldur daglegri vinnu með innsæi og ábyrgðartilfinningu gagnvart landinu og samfélaginu. Þriðja kynslóðin stendur nú vaktina með rætur í hefðum en með augun á framtíðinni. Þetta er dýrmætur arfur og hann er svo sannarlega ekki sjálfgefinn. Það hvílir á okkur að skapa greininni stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi. Við eigum að vera stolt af þessu fólki og standa með því og skapa því eðlilegt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi.