157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

störf þingsins.

[13:48]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Hæstv. forseti. Í síðustu viku var kjördæmavika eins og fram hefur komið og við í þingflokki Viðreisnar ferðuðumst víða um, heimsóttum fyrirtæki og stofnanir og héldum opna fundi. Það er margt sem hægt væri að fjalla um eftir þessa viku en eitt mál kom upp aftur og aftur og það er heilbrigðisþjónusta úti á landi. Góð heilbrigðisþjónusta er ein af grunnforsendum þess að fólk treysti sér til að setjast einhvers staðar að og festa þar rætur. Ef aðgengi að læknum, sérfræðingum og bráðaþjónustu er ótryggt þá veikir það byggðina. Við höfum úrræði í lögum um Menntasjóð námsmanna til að bregðast við mönnunarvanda. Í svari ráðherra við fyrirspurn hv. þm. Sæunnar Gísladóttur á þessu þingi kemur fram að reynslan hafi sýnt að virkjun 27. og 28. gr. laganna er þung og flókin. Ferlið frá beiðni sveitarfélags til greiningar Byggðastofnunar tekur langan tíma og framkvæmdin er óljós. Ég hyggst fylgja málinu eftir með því að senda inn fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra og hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og hvet jafnframt ríkisstjórnina til dáða þegar kemur að virkjun þessara úrræða. Ef úrræði aftur á móti með Menntasjóð námsmanna virkar ekki sem skyldi þurfum við að skoða aðrar leiðir, t.d. með tímabundnum skattafslætti að fyrirmynd skattafsláttar fyrir erlenda sérfræðinga samkvæmt lögum um tekjuskatt. Slíkt úrræði gæti verið markvissara, einfaldara og hraðvirkara til að laða að sérhæft starfsfólk til landsbyggðarinnar.

Hæstv. forseti. Þingflokkur Viðreisnar heimsótti Sjúkrahúsið á Akureyri í nýliðinni kjördæmaviku. Þar er mönnunarvandi og álag sem mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum. Það væri þess vegna alvarlegt ef Akureyri, sem er burðarás heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi, yrði fyrir utan skilgreind ívilnanasvæði líkt og gert var í svæðaskilgreiningu Byggðastofnunar vegna ívilnanaheimildar Menntasjóðs námsmanna. Ef þjónustan veikist á Akureyri, þá veikist hún víðar. Byggðastefna án heilbrigðisþjónustu er innantóm. Ef við ætlum að tala af alvöru um fjölbreytta byggð og sterkt atvinnulíf um allt land þá verðum við að tryggja að fólk geti treyst á öfluga heilbrigðisþjónustu. Það er verkefni okkar hér á Alþingi að tryggja að lagarammi og fjárheimildir styðji við þá sýn. Við megum ekki láta góðar fyrirætlanir duga.