álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp í kjölfarið á hv. þm. Jóni Gunnarssyni, félaga mínum úr minni hluta atvinnuveganefndar, og get tekið undir hvert einasta orð sem hv. þingmaður hefur látið falla. Það er einu sinni þannig að ábyrgðin er á herðum meiri hluta þings og ábyrgðin er sömuleiðis á herðum hæstv. forseta þingsins. Svona virkar þingið okkar. Við í minni hlutanum höfum lagt eitt gott til málanna. Við höfum bent á ákveðna hluti sem væri æskilegt að athuga með. Það hefur ekki verið orðið við því. En ábyrgðin er meiri hlutans og ábyrgðin er hæstv. forseta þingsins.