157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.

[14:34]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir orð félaga minna í minni hluta atvinnuveganefndar. Ég man ekki til þess að meiri hluti nefndar hafi með jafn galopin augu farið gegn ráðgjöf — ekki skynsamlega fram settum athugasemdum og ábendingum okkar í minni hluta nefndarinnar heldur ábendingum og ráðleggingum frá þeim sem vafalaust ættu að hafa mesta vigt þegar að svona löguðu kemur, annars vegar úr hæstv. ráðuneyti málaflokksins og hins vegar frá nefndasviði Alþingis sjálfs. Það að litið sé fram hjá slíkum ábendingum um að ígrunda lagalegan grundvöll málsins betur en þegar hefur verið gert og yfirhöfuð í ákveðnu tilliti, verður auðvitað ekki á ábyrgð neinna annarra en sem það gera og eftir því verður vafalaust tekið þegar þar að kemur hvernig menn bregðast við þeim augljósum vanköntum sem hér eru á málatilbúnaði og mun verða almenningi og okkur þingmönnum ljósara eftir því sem málinu vindur fram, fyrst hér í þinginu og síðan vafalaust fyrir dómstólum.