álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Þetta er hið sorglegasta mál. Ég held að meiri hluti stjórnarflokkanna fari gegn betri vitund. Það er verið að fara gegn þeirri hugsun og þeirri uppbyggingu sem við höfum byggt upp um sjálfbærar og ábyrgar veiðar með fiskveiðistjórnarkerfinu okkar. Það er verið að fara gegn því. Það er verið að fara gegn vísindunum, það er verið að fara gegn vottunaraðilum sem eru búnir að segja: Við munum missa vottanir, verðin munu lækka. Það er verið að fara gegn þessu öllu, gegn vísindunum, öllu saman. Það er ótrúlegt að horfa upp á þessi vinnubrögð fyrir pólitísk hrossakaup, bitlinga og popúlisma.