157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.

[14:37]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Mér eru minnisstæð þau orð sem ég heyrði einmitt í atvinnuveganefnd frá skrifstofustjóra atvinnuvegaráðuneytisins, hann sagði: Það tíðkast ekki að ráðuneyti framkvæmi mat á áhrifum þingmannamála. Það segir okkur þá væntanlega að nefndin þurfi að taka það til sín og láta fara fram mat á áhrifum þessa frumvarps á stjórnarskrárvarin réttindi, atvinnuréttindi. Var það gert? Ég get ekki séð það. Það er alla vega ekki vísað í neina sérstaka aðila. Þá hlýtur maður að spyrja sig að því: Ætla þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar að sætta sig við það að þetta mál fari hér í gegn án þess að þetta sé skoðað? Ég vil heyra það frá þessum aðilum.