álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.
Virðulegi forseti. Sagan endurtekur sig. Jóhönnustjórnin er komin hér í öllu sínu veldi. Það sem á að gera er þetta: Það á að fara hér í hrossakaup til að troða ESB-martröðinni yfir þjóðina. Hér sitja hv. þingmenn dæmdir; horfið á hann. Meira að segja hv. þingmenn stjórnarliðsins; maður greinir samviskubitið enda er kaldhæðnin slík að sá maður, sá stjórnmálamaður sem barðist hvað harðast, og hafði sem betur fer sigur, fyrir því að við myndum fara eftir vísindalegri ráðgjöf, er annar af tveimur hugmyndafræðingum Viðreisnar, Þorsteinn Pálsson. Nú, á ábyrgð Viðreisnar, ætla menn að grafa undan því kerfi. (Forseti hringir.) Af hverju? Það er öllu fórnandi fyrir ESB-martröðina, öllu.