álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.
Herra forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur. Hér er verið að búa til einhvers lags bakdyraleið, einhverja svona skemmri skírn, sem ríkisstjórnin, jafn ósamstæð og hún virðist í raun vera þrátt fyrir allar Instagram-myndirnar, getur notað til að koma málum sem eru illa ígrunduð og erfitt að rökstyðja lögfræðilega í gegnum þingið með allt öðrum og einfaldari hætti heldur en regluverkið gerir ráð fyrir sem við vinnum hér undir og ráðherrarnir starfa undir. Þetta er grafalvarlegt og stórhættulegt í raun. Ég bara hvet hæstv. ríkisstjórn til að hverfa frá villu síns vegar og vil benda á að þau hafa mögulega með breytingartillögu sinni skapað sér tækifæri, skjól í tíma til að láta skoða þetta með forsvaranlegum hætti hvað lagagrundvöll málsins varðar, með tillögunni um að fresta gildistöku fram til 1. september. Ríkisstjórnin er í fullum færum til að láta vinna þessar úttektir sem er krafa til ráðherramála, ríkisstjórnarfrumvarpa eins og regluverkið liggur, láta vinna slíka úttekt og þá er hægt að klára málið fyrir þinglok því eftir þingfund í dag verður 3. umræðu lokið og atkvæðagreiðslu væntanlega frestað. (Forseti hringir.) Það er hægt að fresta henni fram í maí eða apríl og fá þannig grundvöll undir málið sem hægt er að standa á. Ég hvet virðulega ríkisstjórn til að skoða þessa leið.