157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.

[14:43]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmönnum sem vekja athygli á því hvaða fordæmi er hér verið að koma fram með, þ.e. þetta er þingmannamál og þar af leiðandi þurfum við ekki að fara með málið eins og um stjórnarmál væri að ræða. Á hvað erum við að opna hér?

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er að grafa undan þeirri sjálfbærni sem hefur verið byggð upp í íslenskum sjávarútvegi um áratugaskeið. Hér kemur ríkisstjórn sem að vísu einhverra hluta vegna hætti að halda blaðamannafundi um það hvað hún sé góð en segir nokkurn veginn í hverri einustu ræðu hvað hún sé samstæð. Það er ríkisstjórnin sem er að keyra þetta mál í gegn. Það breytir engu hvort málið sé þingmannamál eða frá hæstv. ráðherra, það er hæstv. ríkisstjórn sem er að keyra þetta mál í gegn. (Forseti hringir.) Hv. þm. Bergþór Ólafsson benti réttilega á að það eru engin tímamörk hérna sem kalla á það að ganga frá málinu með þessum hætti, engin. (Forseti hringir.) Sem segir okkur að sagan er að endurtaka sig. Aftur er um að ræða hrossakaup í þágu þess að troða þessu hræðilega máli (Forseti hringir.) Viðreisnar og Samfylkingarinnar um ESB-martröðina í gegn.