157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.

[14:45]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp eftir að hafa hlýtt á þessar ræður hér, annars vegar áhugaverða umræðu um það hvort þingið megi leggja fram mál og samþykkja lög í landinu (Gripið fram í.)eða hvort það sé framkvæmdarvaldsins að gera það og hins vegar velti ég því fyrir mér hvort þingmenn minni hlutans, t.d. hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson sem var framsögumaður þingmannamáls þar sem grásleppa var sett í kvótasetningu, grásleppa sem var búin að vera frjáls og allir með grásleppuleyfi gátu veitt hér hringinn í kringum landið — það var ákveðið með þingmannamáli með örstuttri greinargerð og lágmarksundirbúningi sem var keyrt í gegnum þingið, ekki einu sinni í fullkominni sátt þeirrar ríkisstjórnar sem var enda voru settir inn fyrirvarar þar sem framsali kvótans var blessunarlega frestað til ársins 2026. Það hefst einmitt núna í ágúst með þessu þingmannamáli sem hefur fengið efnislega góða umfjöllun hjá Alþingi og er með góða greinargerð, talsvert ítarlegri og lengri en greinargerðin í þingmannamálinu sem samþykkt var (Forseti hringir.) þegar grásleppan var kvótasett. Það er komið hér á dagskrá í 3. umræðu vonandi á fundi síðar í dag. Það er áhugavert að hlusta á þingmennina sem stóðu að því að samþykkja þetta þingmannamál koma í röðum (Forseti hringir.) og gagnrýna það að þingmannamál eigi að fara í gegn þrátt fyrir að hafa fengið ítarlegri umfjöllun heldur en þeirra eigið þingmannamál sem var samþykkt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)