157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.

[14:47]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Mig langar að leggja orð í belg, mögulega til að byggja brú yfir til stjórnarandstöðunnar, og bið þá að hugleiða hvað þeir eru að fara fram á hér. Þeir eru að tala um að það sé einhver voði fólginn í því að þingmenn leggi fram frumvörp sem verða að lögum. Er það til þess fallið að styrkja stöðu almennra þingmanna eða eru menn að grafa mögulega undan sinni stöðu í þinginu? Ég held að þeir ættu að hugleiða það. Síðan vil ég líka biðla til hv. þingmanna Miðflokksins, sem tala hér um umbúðastjórnmál og stofnanavæðingu stjórnmálanna en núna telja þeir að það sé ekki hægt að fleyta þessu pólitíska máli áfram vegna þess að það hefur ekki fengið einhvern stimpil í stofnunum, mér finnst að þeir ættu að hugleiða þetta áður en þeir halda lengra með þetta tal hér undir þessum lið.