157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

álitamál varðandi veiðistjórn grásleppu.

[14:48]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er ágætt að hv. þingmenn stjórnarflokkanna skuli koma hér upp og afhjúpa óforskömmugheitin, umræðu um hvort þingið megi setja lög. Það er vitnað til þess þegar lögin voru sett um að kvótasetja grásleppu, eitthvað sem er mjög þekkt í löggjöfinni og hefur verið gert um margar tegundir í gegnum tíðina. Frumvarpið byggði á vinnu ráðuneytisins. Ráðherrann óskaði eftir því að nefndin flytti málið á sínum tíma. Það hafði farið í gegnum alla sérfræðiúttektina á vegum atvinnuvegaráðuneytisins á þeim tíma. Hér er auðvitað grundvallarmunur á. Fullyrt er að þetta mál hafi fengið góða málsmeðferð í þinginu. Það er búið að hafna því að fá forstjóra Fiskistofu á fund nefndarinnar sem reyndar er sú stofnun sem leikur lykilhlutverk í að innleiða breytingarnar. Það er búið að hafna því að fá utanaðkomandi lögfræðiálit þrátt fyrir að lagaskrifstofa þingsins, aðrir sérfræðingar úti í bæ og embættismenn hafi sagt: Ykkur ber skylda til að gera það. Ykkur ber skylda til að gera það. En það skiptir ekki máli fyrir þessa ríkisstjórn. (Forseti hringir.) Já, og þegar hv. þm. Sigurjón Þórðarson segist nú ætla að fara að byggja brýr, ja, þá er mér nánast öllum lokið.

Virðulegur forseti. Þetta er ömurleg staða (Forseti hringir.) sem er búið að koma þinginu í. Ábyrgð forsetaembættisins hér á Alþingi er undir í þessu. Þetta er þannig mál (Forseti hringir.) og ég trúi því bara ekki fyrr en á því er tekið að (Forseti hringir.) hæstv. forseti Alþingis ætli að láta það viðgangast, (Forseti hringir.) hafandi frá eigin skrifstofum (Forseti hringir.) þær upplýsingar um skyldur þingmanna við þingmannamál, að virðulegur forseti ætli að láta það viðgangast að slíkt mál (Forseti hringir.) sé sett hér á dagskrá. (Forseti hringir.) Það er með ólíkindum.