athugasemd forseta.
Virðulegi forseti. Bara örstutt vegna orða virðulegs forseta undir lokin, þá er það þannig að þessi sjónarmið atvinnuvegaráðuneytisins komu mjög skýrt fram í svari til atvinnuveganefndar sem barst skriflega, sennilega í síðustu viku. Og af því að virðulegur forseti beindi orðum sínum til hv. þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins þá liggur þetta fyrir víðar en í orðum á nefndarfundi, svo ég komi hér hv. þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins til varnar.
(Forseti (IngÞ): Þessi athugasemd er móttekin.)