157. löggjafarþing — 77. fundur,  3. mars 2026.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

153. mál
[14:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða, veiðistjórn grásleppu. Ég fer hér yfir helstu atriði.

Nefndin hefur fjallað um málið að nýju eftir 2. umræðu. Við 2. umræðu fundaði nefndin og fékk fulltrúa frá atvinnuvegaráðuneyti á sinn fund. Þá bárust nefndinni minnisblöð frá Fiskistofu og atvinnuvegaráðuneyti sem eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Í morgun var opinn fundur í atvinnuveganefnd með atvinnuvegaráðherra þar sem hún sat fyrir svörum nefndarmanna.

Nefndin fjallaði um hvort þær breytingar sem frumvarpið mælir fyrir um kunni að brjóta í bága við stjórnarskrárvarin réttindi sem gæti leitt til bótaskyldu ríkisins.

Eftir frekari skoðun er það mat meiri hlutans að ákvæði frumvarpsins séu í samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og séu ekki til þess fallin að leiða til bótaskyldu ríkisins. Til viðbótar þeim sjónarmiðum sem fram koma í áliti þessu byggir meiri hlutinn á þeim sem rakin eru í greinargerð með frumvarpinu þar sem fjallað er um eðli veiðiheimilda og stöðu þeirra gagnvart 75. gr. og 72. gr. stjórnarskrárinnar.

Í frumvarpinu er mælt fyrir um breytingu á því fyrirkomulagi sem gildir um stjórn grásleppuveiða. Breytingin felur ekki í sér frekari takmarkanir á aðgengi að atvinnugreininni en þegar er mælt fyrir um í gildandi lögum, enda er gert ráð fyrir að allir þeir sem njóta réttar til veiða á grásleppu í atvinnuskyni á grundvelli laga nr. 102/2024 muni eiga kost á að fá útgefið veiðileyfi frá Fiskistofu verði frumvarpið að lögum. Umræddir aðilar munu þannig áfram njóta réttar til veiða þrátt fyrir að fyrirkomulagið taki breytingum.

Í athugasemdum við 1. gr. frumvarps til laga um stjórn fiskveiða kemur fram að það verði „að vera ákvörðunarefni löggjafans á hverjum tíma hvaða skipulag teljist best henta til þess að nýta þessa sameign þjóðarinnar með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi“. Hæstiréttur hefur í dómaframkvæmd sinni lagt til grundvallar að veiðiheimildir séu aðeins varanlegar í þeim skilningi að þær verða hvorki felldar niður né þeim breytt nema með lögum. Löggjafinn getur því frá einum tíma til annars m.a. kveðið nánar á um réttinn til fiskveiða, þar á meðal úr einstökum stofnum eða bundið hann skilyrðum vegna breyttra sjónarmiða um ráðstöfun þeirrar sameignar íslensku þjóðarinnar sem nytjastofnar á Íslandsmiðum eru, sbr. m.a. dóm Hæstaréttar í máli nr. 779/2016 og í máli nr. 12/2000.

Ekki hefur ríkt full sátt um þá breytingu sem gerð var á veiðistjórn grásleppu með lögum nr. 102/2024. Frumvarp til að breyta fyrirkomulaginu í fyrra horf hefur verið lagt fram og verið til umfjöllunar í atvinnuveganefnd á síðasta og yfirstandandi löggjafarþingi. Í bæði skiptin var það afgreitt frá nefndinni með nefndaráliti meiri hluta. Ljóst mátti því vera að ríkur vilji var til að færa veiðistjórn til fyrra horfs og í samræmi við framangreinda dóma hefur löggjafinn svigrúm til þess.

Meiri hlutinn áréttar að markmið frumvarpsins sé að styðja við smærri útgerðir og byggðir landsins, stuðla að nýliðun í atvinnugreininni og tryggja sjálfbæra og sanngjarnari nýtingu auðlindarinnar í þágu almannahagsmuna. Er það mat nefndarinnar að sóknarmarkskerfið þjóni almannahagsmunum betur en aflamarkskerfið þar sem reynsla af síðarnefnda kerfinu hefur bent til þess að réttindi safnist í auknum mæli á hendur fárra aðila. Slík þróun getur aukið aðgangshindranir, dregið úr nýliðun og haft neikvæð áhrif á smærri útgerðir og byggðir landsins. Af þessum sökum telur meiri hlutinn nauðsynlegt að hverfa frá aflamarkskerfinu og færa veiðistjórn grásleppu aftur til fyrra horfs.

Nú mun ég fara yfir breytingar sem eru hér lagðar til en meiri hluti nefndarinnar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar 8. gr. frumvarpsins þess efnis að framsal aflahlutdeilda verði óheimilt til og með 31. ágúst. Með því verði kveðið skýrt á um að framsal þeirra aflaheimilda sem úthlutað hefur verið sé óheimilt fram að gildistöku nýs kerfis. Þá er lagt til að mælt verði fyrir um að óheimilt verði að flytja aflamark til næsta fiskveiðiárs.

Þá er lögð til breyting á gildistökuákvæði 9. gr., en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lögin taki þegar gildi. Í minnisblaði atvinnuvegaráðuneytis, dags. 18. febrúar síðastliðinn, kemur fram að veiðar á grundvelli hlutdeildarsetningar grásleppu séu þegar hafnar. Yrði frumvarpið samþykkt óbreytt myndu aflahlutdeildir falla niður við gildistöku laganna og veiðar stöðvaðar. Í kjölfarið þyrfti svo að útdeila veiðiheimildum á grundvelli nýrra laga. Nefndin fékk þær upplýsingar að stöðvun gæti varað í allt að þrjár vikur. Meiri hlutinn bendir einnig á að þar sem veiðar eru þegar hafnar er óvíst hversu margir veiðidagar yrðu eftir til skiptanna þegar loks kæmi til útdeilingar að nýju. Til að gæta meðalhófs leggur meiri hlutinn því til breytingu á ákvæðinu þannig að lögin taki gildi 1. september 2026. Þannig muni aflamarkskerfið halda gildi sínu út þetta fiskveiðiár og veiðistjórn í grásleppu færð til fyrra horfs frá og með nýju fiskveiðiári 1. september næstkomandi.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem hér hefur verið gert grein fyrir.

Undir álit meiri hlutans í atvinnuveganefnd rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Sigurjón Þórðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ingvar Þóroddsson, Dagbjört Hákonardóttir og Valdimar Breiðfjörð Birgisson.

Þetta mál, eins og hefur komið hér fram í fundarstjórn og umræðu og umfjöllun í blöðum og víðar í þjóðfélaginu, sérstaklega hjá þeim auðvitað sem hagsmuna eiga að gæta, er mjög umdeilt. Það eru kannski ekki margir sem hafa sett sig vel inn í þetta mál en þeir sem hafa gert það telja að með þessum breytingum séum við að styrkja aftur byggðir landsins og tryggja að útgerð í hrognkelsum verði áfram stunduð vítt og breitt um landið í sjávarbyggðum landsins og þar geti einstaklingar haft af þessu atvinnu sem áður fyrr. Þessar veiðar hafa verið stundaðar við strendur Íslands í áratugi og stærðarviðmið báta hafa verið 15 brúttótonn, eins og við leggjum til í þessu frumvarpi. Með þeim lögum sem eru í gildi núna og því aflamarkskerfi eru engin stærðarmörk sett á báta eða skip, svo það eru komnir mjög stórir bátar og stærri bátar, allt upp yfir 400 tonn, sem hafa veitt hluta af þeim veiðiheimildum, þeirri ráðgjöf sem hefur verið fyrir þetta fiskveiðiár.

Það hefur verið rætt hér undir fundarstjórn forseta að við séum að fara frá vísindalegri ráðgjöf og frá sjálfbærni og við munum missa vottun við þessar breytingar. Þá vil ég halda því vel til haga að við erum með MSC-vottun, höfum verið með hana og erum með hana í dag og hún gengur ekki út á það hvort veitt sé í dagakerfi eða í aflamarkskerfi og Grænlendingar eru búnir að vera í dagakerfinu og eru líka með MSC-vottun svo að það eru aðrir þættir sem eru vegnir og metnir í þeim efnum. Og varðandi dagakerfið þá er í þessum veiðum lögð mikil áhersla á að ganga vel um lífríkið og nýta netaveiðar en ekki botnvörpu eins og stærri skip gera vegna þess að það hefur komið fram að veiðar í botnvörpu fara mjög illa með lífríki sjávar og geta skemmt uppeldissvæði margra fisktegunda. Með því að stunda þessar veiðar við strendur landsins á minni bátum erum við að horfa til umhverfissjónarmiða, ekki síður en til byggðasjónarmiða og jafnræðis í greininni.

Það hefur líka verið talað um hverjir muni fá leyfi í nýju kerfi. Það er algjörlega tryggt og kemur fram í minnisblaði frá Fiskistofu að allir þeir sem leiði rétt sinn frá leyfum 1997 og leiði rétt sinn áfram, allir þeir sem hafa fengið aflaheimildir í þessu kerfi sem nú er í gildi — allir þessir aðilar geta sótt um grásleppuleyfi þegar þessi lög koma til framkvæmda 1. september, þeir geta sótt um leyfi, svo það er ekki verið að ganga á atvinnurétt manna í þeim efnum eða ganga á svig við stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi.

Varðandi fjölda veiðidaga þá verður það eins og áður, það er tekið mið af vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og hún hefur komið yfirleitt tvisvar á fiskveiðiárinu, seinna skiptið oftast í apríl. Þá hafa bæst við dagar og ég geri ráð fyrir því að það verði með sama hætti, þegar þetta frumvarp verður að lögum, og verið hefur í gegnum árin.

Við höfum bent á í okkar nefndaráliti og greinargerð að til að tryggja það og gera sem mest til að koma í veg fyrir meðafla, sem getur orðið þegar net liggja lengi í sjó út af vondum veðrum og það er hætta á því að selir og teistur flækist í netunum, þá leggjum við til að það megi draga net úr sjó án þess að það teljist til daga. Það er gert til að lágmarka það að fuglar eða selir festist í netum og ég tel það vera mikið umhverfismál og skipta miklu máli varðandi sjálfbærni veiðanna og ef ráðherra bregst við því, eins og ég reikna með, þá er hægt að gera það með reglugerð.

Það hefur komið fram í skýrslum Hafrannsóknastofnunar að grásleppuveiðar í gegnum tugi ára hafa ekki ógnað grásleppustofninum. Sé horft til vísindalegrar ráðgjafar Hafró þá hafa menn verið að veiða undir þeirri ráðgjöf svo að kvótasetningin á sínum tíma var ekki gerð á þeirri forsendu að fiskstofninum stafaði ógn af því kerfi sem var í gildi. Það voru um 450 skip sem höfðu rétt til að fá leyfi frá þessum tíma, sem leiddu rétt sinn frá 1997. Ekki hafa öll þau réttindi verið virk, vissulega. En það voru á annað hundrað bátar sem fengu ekki úthlutað veiðiheimildum þegar kvótasetningin var lögð á. Þá voru valin einhver ár sem hentuðu sumum en öðrum ekki, svo margir báru skarðan hlut frá borði eða fengu það lítið að það borgaði sig ekki að fara á veiðar. Það óréttlæti gagnvart þeim og svipting á atvinnurétti leiddi til þess að margir íhuguðu að fara til dómstóla með sín mál en hafa haldið að sér höndum þar sem þeir sáu að það væri ríkur vilji til þess hér á Alþingi að gera þær breytingar sem við erum núna að vinna með og verða vonandi afgreiddar innan skamms frá Alþingi með þessu frumvarpi.

Þetta frumvarp byggist á málefnalegum sjónarmiðum og samræmist markmiði 1. gr. laga um stjórn fiskveiða, að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu. Það er fullt svigrúm löggjafans til að ákveða fyrirkomulag á nýtingu á sameign þjóðarinnar. Það hefur komið fram, eins og hefur verið nefnt hér, álitið sem Magnús Thoroddsen, fyrrum hæstaréttarlögmaður, gaf sjávarútvegsráðuneytinu á sínum tíma sem styður við það og fleiri dómar Hæstaréttar. Í dómi frá árinu 2000 t.d. segir að aflaheimildir séu aðeins varanlegar í þeim skilningi að þær verði hvorki felldar niður né breytt nema með lögum. Og það erum við að leggja til hér, að gera þessar breytingar í þágu jafnræðis og til þess að koma í veg fyrir samþjöppun aflaheimilda. Það þekkja það allir hvers konar samþjöppun hefur orðið í aflamarkskerfinu og ekki til góða fyrir smærri útgerðir og minni sjávarpláss vítt og breitt um landið. Það er engin ástæða til þess, hvorki vísindaleg ástæða eða önnur, að setja grásleppuna í aflamark til að geta braskað með hana og selt á milli og gera nýliðun mjög erfiða, gera nýliðum erfitt að komast inn í þetta kerfi.

Grásleppuveiðar hafa stutt við aðrar veiðar á smærri bátum í kringum landið eins og strandveiðarnar, menn hafa getað lengt tímabilið með því að vera á grásleppuveiðum eða hrognkelsaveiðum og farið síðan á strandveiðar. Þess vegna höfða ég til þeirra hv. þingmanna sem telja sig vera frjálslynda hér á Alþingi og segjast í orði a.m.k. styðja einkaframtakið; þarna erum við aftur að styðja við einstaklingana, einkaframtakið í sjávarbyggðum landsins, fjölskylduútgerðir, að þeir geti haft atvinnu og tekjur af þessum veiðum til að styrkja búsetu sína í smærri byggðum landsins og þar sem hefð hefur verið fyrir því að stunda þessar veiðar. En stundum er það nú, oftar en ekki, þannig að mikill vill meira. Í umfjöllun hér í dag og áður m.a. undir liðnum um fundarstjórn, þar sem hefur verið rætt um hrognkelsaveiðar og hvort veiðarnar eigi að vera í kvóta eða sóknardagakerfi, þá hefur auðvitað verið talað mjög fyrir því að koma þessu undir sem fæsta með því að leyfa bæði framsal og samþjöppun og að stærri bátar geti sópað til sín þeim aflaheimildum sem ráðgjöf hljóðar upp á hverju sinni. En við sem viljum að byggð haldist blómleg vítt og breitt um landið, hvort sem það er til sjávar eða sveita, styðjum að þessi atvinnugrein fái að lifa áfram en þróast líka, það sé unnið með það að þessar veiðar verði sem umhverfisvænstar og það sé horft til þeirra sjónarmiða að reyna að koma í veg fyrir að meðafli komi með þeim veiðum sem þarna liggja fyrir.

Ég treysti því að sú umræða sem hér fer fram í lok umræðu um þetta mál, 3. umræðu, verði málefnaleg og byggð á rökum. Ég veit það að eðlilegt er að menn hafi ólík sjónarmið í þessum málum eftir því hvar í flokki þeir standa, hvort þeir standi með byggð vítt og breitt um landið, einstaklingsframtakinu og fjölskylduútgerðum eða horfi til þess að samþjöppun sem við höfum horft upp á í gegnum árin sé af hinu góða, sem ég tel ekki vera. Þess vegna mæli ég fyrir því að við sem flest styðjum þetta mál þegar það fer í atkvæðagreiðslu innan tíðar.