Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er erfitt að koma upp á eftir Sigmundi með svona hörkugóða ræðu. En núna er samgönguáætlun til umræðu hjá umhverfis- og samgöngunefnd og það hafa fjölmargar umsagnir borist eins og eðlilegt er. Mig langar að vekja athygli þingheims á umsögn frá Ungmennaráði Vestfjarða sem ég tel að við ættum að taka mark á. Ungmennaráðið lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu almenningssamgangna á Vestfjörðum og þeim breytingum sem nú eru fyrirhugaðar á leiðakerfi landsbyggðarvagna. Þar kemur fram að eftir að Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð sameinuðust sé gert ráð fyrir að styrkur Vegagerðarinnar til almenningssamgangna á milli byggðarlaganna falli niður. Ungmennaráðið bendir á að í sameinuðu sveitarfélagi þurfi börn og ungmenni að sækja íþrótta- og tómstundaiðkun, skólastarf og félagslíf á milli byggðakjarna. Skortur á almenningssamgöngum takmarki verulega aðgengi að slíkri þátttöku nema foreldrar geti ekið þeim, sem skapi ójöfnuð og útiloki suma frá virkri samfélagsþátttöku.
Þetta er mjög vel athugað hjá Ungmennaráði Vestfjarða. Það getur ekki verið vilji stjórnvalda að sameining sveitarfélaga leiði til þess að styrkur almenningssamgangna falli niður. Þetta þurfum við að laga. Sameining sveitarfélaga má ekki vera tilefni til þess að ríkið dragi úr ábyrgð sinni á almenningssamgöngum eða velti henni yfir á sveitarfélög án fullnægjandi fjármögnunar. Markmið sameiningar er að efla stjórnsýslu og þjónustu, ekki að veikja aðkomu ríkisins að grunninnviðum.
Ungmennaráð Vestfjarða hefur líka látið sig vetrarþjónustu Vegagerðarinnar varða. Sú þjónusta hefur nefnilega mikil áhrif á þennan hóp. Vetrarþjónusta tryggir greiðar og öruggar samgöngur og hún þarf að hanga saman við almenningssamgöngurnar og gera fólki kleift að sækja skóla og atvinnu á milli byggðakjarna. Það hafa orðið miklar samfélagsbreytingar á síðustu árum. Nú sækja börn íþróttaæfingar og félagsstörf milli byggðarlaga. Börn frá Hvammstanga fara á fótboltaæfingu á Sauðárkróki, ungmenni frá Bíldudal sækja félagsmiðstöðina á Patreksfirði og börnin á Kleppjárnsreykjum stunda íþróttaæfingar í Borgarnesi.
Það eru breyttir tímar. (Forseti hringir.) Vinnusókn, ferðahegðun og þjónustuþarfir hafa tekið breytingum og regluverk stjórnvalda verður að taka mið af þessari þróun. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)