157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:09]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Það er vaxandi órói í heimsmálunum. Stríð geisar í Mið-Austurlöndum. Það er stríð í Úkraínu. Það eru vaxandi og alvarlegar blikur á lofti í efnahagsmálum Íslands. Heimilin og fyrirtækin blæða. Raunheimatenging ríkisstjórnar Íslands virðist engin og forgangsmál hennar stórundarleg. Viðreisn var stofnuð um eitt mál. Já, hún var stofnuð um eitt mál, að koma Íslandi í Evrópusambandið. Samfylkingin plataði raunar kjósendur fyrir alþingiskosningarnar síðustu og lagði þannig enga áherslu á ESB-málin fyrr en eftir kosningar. Þögn þriðja hjólsins í ríkisstjórninni, Flokks fólksins, hefur verið keypt. Það er augljóst, flokkur sem hingað til hefur verið á móti ESB-aðild. Nú er það grásleppan sem er tekin úr aflamarkskerfi fyrir ESB. ESB-aðlögunarsamtalsbjölluatið er nú að fara á fulla ferð. Það er augljóst mál.

Hæstv. utanríkisráðherra greindi frá því í fjölmiðlum í vikunni að hún gerði ráð fyrir að kynna á föstudag þingsályktunartillögu þar sem á að spyrja þjóðina hvort hún vilji kíkja í ESB-pakkann, hvort hún vilji kíkja í pakkann. Það lýsir ákveðnum hroka í utanríkisráðherra Viðreisnar þegar hún segir að henni þyki vænt um að heyra að fólk vilji setja fram samningsmarkmið — henni þyki vænt um — vegna þess að þeir sem eru mest mótfallnir segja að það sé ekki neitt um að semja. Þá segir ráðherrann samningsmarkmið Íslands vera skýr. Samningsmarkmið skýr, já, er það? Frasapólitík ráðherrans og innstæðulausar fullyrðingar eru ekki traustvekjandi.

Ég minni á að það er skjalfest í skýrslu ESB frá því í nóvember síðastliðnum að klúbburinn ásælist auðlindir Íslands; fiskimiðin okkar, orkuna og margt fleira. Hvað er um að semja annað en aðlögun að regluverki ESB? Það eru engar varanlegar undanþágur frá laga- og regluverki Evrópusambandsins sagði ?tefan Füle, þáverandi stækkunarstjóri ESB, á blaðamannafundi með þáverandi utanríkisráðherra, Össuri Skarphéðinssyni. Brussel-báknið hefur ekkert breyst (Forseti hringir.) og ég hef áhyggjur af hagsmunagæslu Íslands á vakt Viðreisnar gagnvart þessum klúbbi.

Og p.s. (Forseti hringir.) — frú forseti, ég er alveg að ljúka máli mínu — Noregur er ekki á leið í ESB. Því var hafnað með miklum meiri hluta í norska Stórþinginu í gær og ég hvet þingheim til að kíkja á þá umræðu sem þar fór fram.