157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Þungaflutningar hafa aukist gífurlega á þjóðvegum landsins síðustu u.þ.b. 20 ár með tilheyrandi álagi á vegakerfið sem víða ber ekki slíka flutninga. Þarna eru á ferðinni fiskflutningar sem aukist hafa mikið með fiskeldinu ásamt vöruflutningum um land allt sem áður fóru að stærri hluta sjóleiðina þegar strandsiglingar voru öflugur og raunhæfur valkostur. Fyrrverandi ráðherrar og þingmenn hafa oft talað fyrir eflingu strandsiglinga sem skilað hefur tímabundnum árangri. Nú hefur starfshópur skipaður af hæstv. innviðaráðherra, Eyjólfi Ármannssyni, skilað niðurstöðum varðandi eflingu strandsiglinga og komið með tillögur til úrbóta sem ég bind miklar vonir við, bæði út frá umhverfissjónarmiðum og hagkvæmari flutningum sem gætu skilað sér í lægra vöruverði á landsbyggðunum og dregið úr viðhaldi vega sem sparar ríkinu stórfjármuni.

Ég nefni hér nokkrar tillögur starfshópsins sem eru áhugaverðar og vonandi verður unnið með þær í framhaldinu. Það er þjóðþrifamál að koma á öflugum og hagkvæmum strandsiglingum því þjóðvegirnir þola ekki til lengdar þessa stórauknu þungaflutninga. Ég vil nefna t.d. tillögu um að stjórnvöld beiti sér fyrir því að skip í reglubundnum strandsiglingum hér við land verði utan svokallaðs ETS-kerfis með sama hætti og innanlandsflugið er. Ég vil einnig nefna hugmynd um að Vegagerðin hraði mati á kostnaði og ábata vegna landflutninga við þjóðvegakerfið og því verði lokið eigi síðar en árið 2027. Þær upplýsingar verði nýttar við stefnumótun stjórnvalda varðandi vegakerfið, losun gróðurhúsalofttegunda og umferðaröryggi. Einnig að hafnaryfirvöld leysi skip sem eru í reglubundnum strandsiglingum frá hafnsöguskyldu og að gjaldakafli hafnalaga verði endurskoðaður með það að markmiði að gera höfnum mögulegt að styðja betur við þróun strandflutninga. Áfram strandflutningar.