Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær felldi Stórþingið tillögu þess efnis að Noregur myndi skoða aðild að Evrópusambandinu. Stórþingið felldi þessa tillögu með 78 atkvæðum gegn 21. Sömuleiðis voru felldar varatillögur um að hefja viðræður við Evrópusambandið um að Noregur félli undir ákvæði Lissabon-sáttmálans um sameiginleg varnarmál og tollabandalagið. Það var fellt með 91 atkvæði gegn sjö. Landsþing verkamannaflokksins, sem er systurflokkur Samfylkingarinnar, felldi sömuleiðis tillögu um að þeir færu sömu leið og við með þessa skrýtnu þjóðaratkvæðagreiðslu. (Gripið fram í: En systurflokkur Sjálfstæðisflokksins? )Báðir forsætisráðherrar, sem eru frá sósíaldemókrataflokkum, voru með þær áherslur fyrir kosningar að taka ekki Evrópumálin upp, kljúfa ekki þjóðina, en leggja áherslu á innanríkismál. Eftir kosningar ákvað ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hins vegar að svíkja það kosningaloforð. Við lásum það, virðulegi forseti, í erlendum fjölmiðlum að til stæði að vera með þessa sérkennilegu þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst. Ef það gengur eftir verður ekki hægt að taka hér umræðu um þetta mál af neinu viti af því að við erum með sveitarstjórnarkosningar í maí.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra lofaði að einbeita sér að innanríkismálum þegar hún talaði við kjósendur fyrir kosningar. Núna segir hæstv. forsætisráðherra, þegar við sjáum hvað er að gerast í efnahagsmálunum og allir kalla eftir (Forseti hringir.) aðgerðum, að máske komi einhverjar tillögur eftir páska. En það mun vera forgangsmál, virðulegi forseti, og öllu til þess fórnandi að keyra í gegn með öllum ráðum, þó aðallega blekkingum, að koma Íslendingum inn í Evrópusambandið, sem er óafturkræft slys ef það verður.