Störf þingsins.
Frú forseti. Öflug kuldaskil gengu yfir suðvesturhorn landsins síðastliðinn fimmtudag og sköpuðu sögulegar aðstæður í íslenskri flugsögu þegar 16 farþegaþotur leituðu til varaflugvallanna, þar af 15 frá Icelandair. Finnair lenti á Reykjavíkurflugvelli og sýndi Reykjavíkurflugvöllur mikilvægi vallarins sem varaflugvöllur og náttúrlega almennt í íslensku flugi. Sjötta vélin frá Icelandair gat ekki lent á Reykjavíkurflugvelli þar sem kuldaskilin frá Keflavík höfðu náð til vallarins og þar með lokað flugvellinum líka. Það lenti líka ein herflugvél á Reykjavíkurflugvelli. Til Akureyrar fóru átta farþegaþotur, sem er það mesta sem nokkurn tímann sést og ber að þakka það að einungis eru tvö ár liðin síðan nýtt flughlað var tekið í notkun á Akureyrarflugvelli sem skapaði forsendur fyrir því að hægt var að ráða við þennan fjölda véla sem var í þessu máli — einungis tvö ár síðan. Einnig fóru þrjár vélar til Egilsstaða.
Ég vil koma hér, frú forseti, og benda á það að í samgönguáætlun núna, í framkvæmdahluta fyrsta hluta samgönguáætlunar, er reiknað með að farið verði í framkvæmdir við Egilsstaðaflugvöll. Það er talað um að það gerist á fimm ára tímabili að klára framkvæmdina. Það er gríðarlega mikilvægt á þessum tímapunkti að farið sé í þá framkvæmd á eðlilegum framkvæmdatíma, að það sé hægt að klára þessa framkvæmd á 30–36 mánuðum. Verkefnið er fjármagnað í gegnum varaflugvallargjaldið, sem var samþykkt hér fyrir nokkrum árum á þinginu og farið var að rukka inn fyrir rúmum tveimur árum. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og ég vona svo sannarlega að þessum hluta samgönguáætlunar verði breytt til að tryggja flugöryggi í landinu. Það er gríðarlega stórt og mikilvægt mál.