157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[15:38]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég sé mig knúinn til að vekja athygli forseta á því að í morgun var afgreitt út úr velferðarnefnd frumvarp um svokallaða launavísitölu í ágreiningi í nefndinni sem er nú kannski ekki endilega nýnæmi í þessari nefnd. Ég vil nefna það við forseta að málið var sent til nefndarinnar milli 2. og 3. umræðu í þeim tilgangi að það fengi þar málefnalega skoðun, sérstaklega í ljósi þeirrar háværu gagnrýni sem var á málið utan þings. Meiri hluti velferðarnefndar hefur hins vegar beitt sér gegn því að málið fái fullnægjandi skoðun, neitar t.d. að fjárlaganefnd veiti umsögn um málið og að Seðlabanki Íslands komi fyrir nefndina og greiddi reyndar atkvæði gegn því að nefndin fengi upplýsingar samkvæmt gagnabeiðni þrátt fyrir að það væri augljóst að meiri hluti væri fyrir því að ná því í hús.

Frú forseti. Maður veltir því fyrir sér hvort það sé ekki komið nóg af einhvers konar sýndarsamráði hér af hálfu fulltrúa stjórnarliða.