157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[15:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Ólafs Adolfssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, er varða þessa nýbreytni sem virðist vera að grafa um sig hér í þinginu, að þegar í einhvers lags samkomulagi mál eru send til nefndar, annaðhvort innan umræðu eða milli 2. og 3. umræðu, þá séu engin áform uppi hjá meiri hluta nefnda, að því er virðist, að skoða mál raunverulega heldur að einhverju algeru lágmarki og reynt að sleppa við gestakomur eins og nokkur kostur er. Við kynntumst þessu í grásleppumálinu. Við kynntumst þessu auðvitað á síðasta þingi í nokkrum málum. Núna er það almannatryggingamálið. Ef þetta verður nýi takturinn í þinginu þá finnum við okkur fljótt á þeim stað að um ekkert verður að semja af því að það verður ekki traust á milli aðila hvað það varðar að einhver raunveruleg meining sé á bak við það að senda mál til nefndar milli umræðna. Ég vil bara benda virðulegum forseta á þetta af því þetta grefur undan því samstarfi sem nauðsynlegt er hér milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Þótt iðulega gangi mikið á er beinlínis hættulegt að grafa undan því að senda málin til nefndar milli umræðna og núlla út það gagn sem af slíku getur orðið.