157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[15:41]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Þetta mál núna með launavísitöluna og almannatryggingar grunar mig að sé versta málið af öllum þeim sem gætu komið fram í þinginu á þessu kjörtímabili og verður væntanlega versta málið sem mun koma fram á þessu kjörtímabili. Ég trúi því ekki að það verði verra mál. Sá sem hér stendur var bæði í atvinnuveganefnd og velferðarnefnd síðastliðið vor þar sem fjöldinn allur af málum kom í gegnum nefndirnar og öllu sem sneri að eftirlitshlutverki nefndanna og þingmanna í nefnd, að kryfja málin, var í raun bara hafnað. Eitt af því sem var ekki komið til móts við þá var einmitt að senda launavísitölumálið inn til fjárlaganefndar og fá umsögn frá fjárlaganefnd; eðlilegasti hlutur í heimi. Það er verið að setja 20% af fjárlögunum á sjálfstýringu með þessum hætti. Það er verið að búa til slæmt fordæmi um það hvernig við ætlum að haga okkur í ríkisfjármálunum. Við þekkjum fjöldann af þessum málum. Þessu verður að linna og ég bara hvet alla hv. þingmenn að fara að huga að eftirlitshlutverki sínu sem þingmanna. (Forseti hringir.) Það er gríðarlega mikilvægt í okkar starfi.