afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.
Virðulegi forseti. Ég er hér kominn til að ræða fundarstjórn forseta. Nú þarf forseti að segja þingi og þjóð frá því hvort það sé orðin almenn regla að mál fái ekki eðlilega þinglega meðferð. Er það, virðulegur forseti, orðin almenn regla? Ég bendi á það að þetta snýst ekki bara um það að þingmenn stjórnarandstöðunnar vinni vinnuna sína. Allir þingmenn eiga að vinna vinnuna sína og við eigum að taka afstöðu til mála á grundvelli bestu mögulegu upplýsinga. Til þess erum við með hv. þingnefndir. Hér koma trekk í trekk, dag eftir dag, upp mál þar sem þetta er ekki gert. Ég er ekki að byrja hér í gær. Ég fullyrði þess vegna að þetta eru ný vinnubrögð. (Forseti hringir.) Hér er verið að skapa fordæmi sem er grafalvarlegt og virðulegur forseti veit þetta. Virðulegur forseti þarf að svara þingi og þjóð því hvort að þetta sé orðin regla á Alþingi Íslendinga.