157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[15:46]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Ég get ekki tekið undir þessa gagnrýni og ég held að ég sé að tala hér fyrir hönd meiri hlutans í nefndinni. Ég er þó sammála því að þetta mál sem hér um ræðir er einstaklega sérstakt að því leyti til að okkar færustu sérfræðingar og hagfræðingar landsins hafa í rauninni deilt um það hversu gott það er eða slæmt það er. Það er í fyrsta sinn sem maður upplifir kannski mjög svo ólík sjónarmið um sama mál. En málið hefur verið rætt mjög vel og lengi og ítarlega á þessu þingi og líka því síðasta. Það hefur verið aflað gagna og fengnir gestir og undir lokin, því það átti nú að afgreiða málið úr nefnd fyrir tveimur vikum, kom listi með frekari beiðnum um gögn og gesti og það var reynt að verða við því eins og hægt var eftir atvikum og við fengum gesti og við fengum gögn. Þannig að núna er bara einfaldlega komið að endalokum að því leytinu til að við í meiri hlutanum ákváðum að við værum tilbúin að draga línu í sandinn og leyfa þessu máli að koma til 3. umræðu þar sem við getum haldið áfram að fjalla um þau ólíku sjónarmið sem snúa að þessu máli. En við teljum þetta gott mál og fögnum því að við séum komin á þennan stað með það.