afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.
Virðulegi forseti. Ég hef hér komið upp áður og ítreka það hversu miður mér þykir á hvaða stað Alþingi Íslendinga er komið. Hér kemur stjórnarandstaðan trekk í trekk og ekki að ástæðulausu og bendir forseta á algerlega ófullnægjandi vinnubrögð nefnda Alþingis, algerlega ófullnægjandi, þar sem hinn lýðræðislegi réttur stjórnarandstöðu er hunsaður. Það er ekki bara í því máli sem var afgreitt út úr velferðarnefnd í morgun er varðar launavísitöluna heldur átti þetta líka við á síðasta ári um veiðigjöld, um að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þar var ekki gert áhrifamat eins og átti að gera. Þetta á sömuleiðis við um grásleppuna og svo væri hægt að telja lengi.
Hér kemur hv. þm. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og segir að hér séu helstu hagfræðingar landsins að deila. Þetta er svo mikil vitleysa (Forseti hringir.) og firra í hv. þingmanni því að hér eru hæfir hagfræðingar, (Forseti hringir.) allir hagfræðingar landsins nema þrír. Það eru eingöngu forsætisráðherra, fjármálaráðherra og fyrrum ráðherra, Gylfi Magnússon, sem tala fyrir því að þetta sé eitthvað gott mál. (Forseti hringir.) Allir aðrir vara við þessu máli og meira að segja er búið að segja núna meiri hlutanum hér í þessu húsi (Forseti hringir.) að í uppsiglingu séu stærstu hagstjórnarmistök seinni tíma. (Forseti hringir.) Því munið þið bera ábyrgð á hér í meiri hlutanum.
(Forseti (ÞSv): Forseti æskir þess að þingmenn virði ræðutímann og ávarpi ávallt forseta.)